26.10.2011 | 16:01
Rangfærslur í frétt [UPPFÆRT]
Það má benda á að svo virðist sem að fréttamaðurinn sé að víxla saman upplýsingum í fréttatilkynningunni frá Nokia.
Þessir tveir Windows Phone-símar frá Nokia eru ekki sérstaklega hugsaðir fyrir þróunarlöndin heldur er það önnur lína frá Nokia sem nefnist Asha. Þar eru fjórir nýjir símar sem voru einnig kynntir við sama tækifæri og eru þeir m.a. með 5 megapixla myndavél og stuðning við allt að 32GB minniskort.Þetta eru símar sem eru hugsaðir fyrir þróunarlöndin og frekari landvinninga Nokia á þeim markaði.
Enginn af símunum sex sem voru kynntir í dag eru með innbyggt 32GB minni.
Nánar má lesa um málið á Tækniblogginu:
Lumia-línan kynnt frá Nokia, tveir nýir Windows Phone-símar
Asha-línan kynnt frá Nokia, 4 nýir símar sem keyra á Series 40-stýrikerfinu frá Nokia
[UPPFÆRT] Ég tek eftir því hérna í morgunsárið að búið er að leiðrétta fréttina þannig að hún er með réttum upplýsingum. Er það vel :)
|
Nokia kynnir nýja Windows-snjallsíma |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Tölvur og tækni | Breytt 27.10.2011 kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2011 | 23:13
Bréf Jobs til starfsmanna Apple
Sannarlega eru miklar sviptingar í tækniheiminum þessa dagana. Fyrst koma fregnir af kaupum Google á Motorola, síðan tilkynnir að þeir ætli að hætta með webOS-snjallsímana sína og spjaldtölvur og svo nú berast fregnir af afsögn Steve Jobs hjá Apple.
Hérna er hægt að lesa bréfið sem Steve Jobs sendi til starfsmanna Apple...
http://www.hataekni.is/is/hataekni_i_25_ar/taeknibloggid/id/1332
|
Jobs hættir sem forstjóri Apple |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.6.2011 | 10:29
Nei, það er ekki rétt...
Allt um málið hérna - http://www.hataekni.is/is/hataekni_i_25_ar/taeknibloggid/id/1189
|
Microsoft að kaupa Nokia? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2011 | 09:39
Allt um málið ...
... Tæknibloggið gerir þessu máli góð skil í dag.
www.taeknibloggid.is
|
Nokia og Microsoft í samstarf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
12.11.2010 | 11:43
Til hvers eru dómstólar?
Ég velti því fyrir mér að ef Siðmenntar-mönnum finnst svona illilega vegið að sér með þessum hætti að af hverju stefna þeir þá ekki viðkomandi prestum og RÚV fyrir dóm til þess að fá ummælin dæmd dauð og ómerk?
Er það ekki einmitt tilgangur dómstóla þessa lands? Að borgarar geti skotið ágreiningsmálum sínum til óháðs aðila sem síðan um það dæmir?
|
Siðmennt vill andmælarétt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
18.10.2010 | 10:00
Hvatning til foreldra
"Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar" byggir þessi drög sín m.a. á því að kvartað hafi verið við skólayfirvöld vegna messuferða í kringum stórhátíðir kirkjunnar sem og við heimsóknum aðila tengdum trú hérlendis í leik- og grunnskóla.
Eftir því sem ég best veit þá eru þessar kvartanir einhverjir tugir á hverju ári og koma inn í kringum jól og páska. Miðað við að þetta séu ekki meiri kvartanir en þessir tugir hjá þeim 13.000 börnum sem eru í leik- og grunnskólum þessarar borgar þá er þetta einstaklega lágt hlutfall.
Ég hvet foreldra hér í borg sem eiga börn í leik- og grunnskóla að hafa samband við skólayfirvöld og þakka þeim fyrir það samstarf sem verið hefur í gegnum tíðina á milli skóla og kirkju og sömuleiðis hvetja til þess að svo verði um ókomna tíð.
|
Tillögur valda óánægju |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.10.2010 | 16:32
Myndavélin sem var notuð
Ég má til með að benda á að myndavélin sem var notuð til þess að taka myndir af þessum skemmdum er í raun myndavélasími sem heitir Nokia N86 8MP.
Myndavélin í Nokia N86 8MP er 8 megapixlar og með Carl Zeiss-linsu enda sjáið þið að þetta eru kristaltærar myndir og nær öllum beyglum og rispum einstaklega vel.

|
Ráðherrabílar illa útleiknir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2010 | 10:49
Jákvætt skref?
Þrálátur orðrómur hefur verið í gangi undanfarnar vikur og mánuði þess efnis að OPK sjálfur, Olli-Pekka Kallasvuo, yrði settur af innan Nokia sem forstjóri. OPK hefur starfað hjá Nokia í um 30 ár og var lengi vel aðallögfræðingur Nokia áður en hann tók sæti í stjórn Nokia og varð síðar forstjóri fyrirtækisins.
Eins og kemur fram í fréttinni hefur Nokia átt í vandræðum með að fóta sig á svo að segja nýjum markaði á undanförnum árum sem Apple hefur m.a. verið að gera góða hluti á og nú upp á síðkastið Google með Android-stýrikerfið sitt. Hér á ég auðvitað um hinn svonefndar snjallsímamarkað. Þrátt fyrir vandamál Nokia á þessu sviði þá hefur Symbian, stýrikerfi Nokia í flestum þeirra snjallasímum, verið með um 40-45% heimsmarkaðshlutdeild undanfarin ár, þar sem BlackBerry hefur komið í öðru sæti með um 20% og síðan Apple með á bilinu 11-14%
Þrátt fyrir þess uppsögn þá töldu margir það, m.a. ég, að OPK fengi séns fram yfir söluna á Nokia N8 sem kemur á markað hérlendis í október, til þess að sanna sig endanlega í starfi. Ljóst er að Nokia N8 er fullkomnasta símtækið á markaðnum í dag og öruggt að þessi sími muni seljast í bílförmum þegar hann kemur út. Nokia N8 er loksins hið almennilega svar Nokia við kröfum markaðarins.
En nú er það ljóst, OPK stígur niður og í hans stað kemur fyrsti forstjóri Nokia sem er ekki Finni. Stephen Elop var einn af framkvæmdastjórum Microsoft og hvíldi m.a. á herðum hans að þróa og vinna með Microsoft Office-lausnina sem allir þekkja sem og Microsoft Dynamics NAV sem er bókhaldsforrit sem flestir þekkja undir nafninu Navision. Einnig kom hann að Microsoft Unified Communications-lausninni frá Microsoft sem felur m.a. í sér að starfsfólk fyrirtækja með Microsoft Exchange-póstþjón getur átt í samskiptum innan fyrirtækisins í spjallforritum eða símtölum án þess að fara út fyrir tölvukerfi fyrirtækisins.
Ég bind miklar vonir við Stephen Elop og hef fulla trú á því að þetta sé rétt ákvörðun hjá Nokia sem verður til þess að koma Nokia aftur á þann stall sem það hefur verið á svo lengi, sem leiðandi framleiðanda á sviði farsíma og tengdra lausna.
|
Nýr forstjóri Nokia |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)


hjaltdal
solargeisli
jarnskvisan
raudka
gudmundurmagnusson
audureva
davidorn
gattin
ellahelga
evathor
arnaeinars
gudrunthora
zeriaph
hallurmagg
herdis
fleipur
atvinnulaus
kristjanb
klerkur
vonin
martasmarta
ordid
rebekka
siggasin
steini69
tinnaros
prumpa
overmaster
vefritid
thjodarblomid
iceberg