26.10.2011 | 16:01
Rangfærslur í frétt [UPPFÆRT]
Það má benda á að svo virðist sem að fréttamaðurinn sé að víxla saman upplýsingum í fréttatilkynningunni frá Nokia.
Þessir tveir Windows Phone-símar frá Nokia eru ekki sérstaklega hugsaðir fyrir þróunarlöndin heldur er það önnur lína frá Nokia sem nefnist Asha. Þar eru fjórir nýjir símar sem voru einnig kynntir við sama tækifæri og eru þeir m.a. með 5 megapixla myndavél og stuðning við allt að 32GB minniskort.Þetta eru símar sem eru hugsaðir fyrir þróunarlöndin og frekari landvinninga Nokia á þeim markaði.
Enginn af símunum sex sem voru kynntir í dag eru með innbyggt 32GB minni.
Nánar má lesa um málið á Tækniblogginu:
Lumia-línan kynnt frá Nokia, tveir nýir Windows Phone-símar
Asha-línan kynnt frá Nokia, 4 nýir símar sem keyra á Series 40-stýrikerfinu frá Nokia
[UPPFÆRT] Ég tek eftir því hérna í morgunsárið að búið er að leiðrétta fréttina þannig að hún er með réttum upplýsingum. Er það vel :)
|
Nokia kynnir nýja Windows-snjallsíma |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Tölvur og tækni | Breytt 27.10.2011 kl. 09:22 | Facebook


hjaltdal
solargeisli
jarnskvisan
raudka
gudmundurmagnusson
audureva
davidorn
gattin
ellahelga
evathor
arnaeinars
gudrunthora
zeriaph
hallurmagg
herdis
fleipur
atvinnulaus
kristjanb
klerkur
vonin
martasmarta
ordid
rebekka
siggasin
steini69
tinnaros
prumpa
overmaster
vefritid
thjodarblomid
iceberg
Athugasemdir
það skiptir svo sem ekki öllu máli, aðalmálið er að fá á markað hér síma með Windows phone 7+ það gefur mikla möguleika á þróun kerfa fyrir þá.
Kristján B Kristinsson, 26.10.2011 kl. 16:45
Það skiptir auðvitað höfuðmáli að Nokia er loksins komið með svona síma út.
Ég hinsvegar, sem áhugamaður um tæknifréttir, get ekki annað en bent á það sem er klárlega rangt í þessari frétt. Það virðist sem að fréttamaðurinn hafi skautað yfir fréttatilkynninguna eða hvað það var sem var unnið upp úr Reuters og tengt vitlausar staðreyndir í fréttinni.
Magnús V. Skúlason, 26.10.2011 kl. 16:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.